![]() |
||||||||||||||||||||||||
|
Vatnslitamyndir PálsFrá útskrift úr Myndlista- og handíðaskólanum hefur Páll gert mikið af því að mála vatnslitamyndir. Viðfangsefnin hafa að mestu verið tengd náttúrunni; fjöll, jöklar, vatnsföll og skógur, auk þess sem þekkt og lítt þekkt andlit eru viðfangsefni þegar svo ber undir. Á samsýningu Páls og Ásmundar Sveinssonar í Ásmundarsafni í ársbyrjun 2001 sýndi Páll 12 metra langa vatnslitamynd í stóru bogahvelfingu safnsins. Myndin sýndi fjallahringinn á Húsafelli þannig að aðstæður í sýningarsalnum voru kjörnar til að varpa fram þeim aðstæðum sem eru á Húsafelli. Þessi þekkti fjallahringur á drýgstan þátt í þeirri einstöku veðursæld sem oft ríkir á Húsafelli.
|
|||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||